Fjölskylduíbúð á Adeje, Tenerife
Komdu og njóttu hlýjunnar og sólarinnar með fólkinu þínu í frábærri fjölskylduíbúð með öllu til alls…
Komdu og njóttu…
Njóttu sólarinnar með fjölskyldunni og fleiri til í þessari 160 fm íbúð sem býður upp á gistingu fyrir 8-10 manns. Íbúðin er með hjónasvítu, tveimur svefnherbergjum og góðum svefnsófa í stofunni. Vel búið eldhús er tilvalið til að útbúa morgunverð sem notið er í sólinni eða græja kvöldmat þegar ekki er farið út að borða - og Weber grill á öðru af einkaútisvæðunum sem fylgja íbúðinni.
Og þegar þið viljið bara hafa það notalegt á kvöldin - eða hafa fyrir börnunum á meðan fullorðna fólkið hefur það kósý fyrir utan, þá hafið þið allt til alls fyrir krakkabíó í stofunni. Stutt frá flugvellinum, ströndinni og X Sur verslunarkjarnanum, og fjölmargar verslanir og veitingastaðir í kring.
Allt til alls…
Þrjú svefnherbergi
Tvö baðherbergi
Svalir úr tveimur herbergjum
Vel búið eldhús
Tvö einka útisvæði
Weber gasgrill + gashella
Tvær upphitaðar sundlaugar
Nóg af sólbekkjum
Allt fyrir ströndina
12 mín ganga á Fanabe ströndina
15 mín í bíl frá flugvellinum
700m frá X Sur verslunarkjarnanum
15 mín ganga í Aqualand
Fjöldi verslana og veitingastaða í kring
Sjónvarp í hjónaherbergi og stofu
Nettenging
Apple TV
Netflix
Sjónvarp Símans
Loftkæling - í einu svefnherbergi og stofu
Viftur og ferðaloftkæling í öðrum herbergjum
Fullbúið þvottahús
12 kg þvottavél og þurrkari
2 ungbarnarúm
2 barnastólar
1 barnasessa í bílinn
Líkamsræktartæki
Frábær aðstaða fyrir hjólafólk
2 rafmagnshjól - annað með barnastól