Einka útisvæði

Garður fyrir framan

Fyrir framan er 24 fm garður. Hér kemur morgunsólin og það er líka notalegt að sitja í skugganum seinnipartinn eftir góðan sólardag.

Garður fyrir aftan

Fyrir aftan er 24 fm garður sem snýr að sundlauginni og það eru bara nokkur skref út á sundlaugarsvæðið. Weber gasgrill og auka gashella auk marmara borðs til að leggja frá sér þegar verið er að elda. Rafdrifin markísa.

Svalir

Sitthvorar 6 fm svalirnar frá hjónaherberginu og öðru svefnherberginu.

Sundlaugargarður

Frábært pláss í sameigninni.